Persónuverndarstefna

Fornleifastofnun Íslands, kt. 680695-2969, Bræðraborgarstíg 9, 101 Reykjavík, ber ábyrgð á vinnslu persónuupplýsinga á vefnum fornleif.is. Hér er sagt frá því hvaða upplýsingum er safnað, til hvers og hvaða rétt þú átt. Vinnslan fer eftir lögum nr. 90/2018 um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga og almennu persónuverndarreglugerðinni (GDPR).

Fyrirspurnir

Þegar þú sendir fyrirspurn á vefnum fáum við nafn þitt, netfang, símanúmer ef þú gefur það upp, efni fyrirspurnarinnar og skilaboðin. Þau berast skrifstofunni í tölvupósti og eru ekki geymd á vefnum sjálfum. Við notum þau eingöngu til að svara þér og geymum ekki lengur en þörf er á.

Pantanir í vefverslun

Þegar þú pantar fáum við nafn, netfang, síma, heimilisfang ef senda á vöruna, athugasemd og það sem þú pantaðir. Pöntunin berst skrifstofunni í tölvupósti og þú færð staðfestingu á netfangið þitt. Við notum upplýsingarnar til að afgreiða pöntunina og geymum þær eins lengi og lög um bókhald krefjast.

Kortagreiðslur fara fram á öruggri greiðslusíðu Teya. Kortaupplýsingar berast aldrei Fornleifastofnun; við fáum aðeins staðfestingu á greiðslunni.

Vefmælingar

Ef þú leyfir það notum við Google Analytics til að sjá hvernig vefurinn er notaður, t.d. hvaða síður eru skoðaðar og hvaða skýrslur eru sóttar. Google Analytics skráir m.a. síður, tíma, tegund tækis og vafra, hvaðan heimsóknin kom og land eða borg, en geymir ekki IP-tölu. Gögnin eru geymd í 14 mánuði og eru ekki notuð í auglýsingar.

Google Ireland Ltd. vinnur gögnin fyrir okkur. Þau geta borist til Bandaríkjanna, en Google á aðild að rammasamningi ESB og Bandaríkjanna um gagnavernd (EU-US Data Privacy Framework).

Ekkert er sent til Google nema þú smellir á Leyfa. Þú getur skipt um skoðun hvenær sem er með því að smella á Vafrakökur neðst á síðunni.

Vafrakökur og vefgeymsla

  • fornleif-consent: geymir val þitt um vefmælingar í 12 mánuði.
  • fornleif-cart: geymir innkaupakörfuna í vafranum þínum.
  • _ga og _ga_556QDD6X12: vafrakökur Google Analytics, aðeins ef þú leyfir vefmælingar. Þær gilda í allt að 2 ár og eru fjarlægðar ef þú hafnar síðar.

Vinnsluaðilar

Vefurinn er hýstur hjá Scaleway í Frakklandi, sem sendir einnig tölvupóst vefsins. Efni vefsins og myndir koma frá Sanity. Skrifstofan notar Google Workspace fyrir tölvupóst. Teya annast kortagreiðslur. Við seljum aldrei persónuupplýsingar.

Réttindi þín

Þú átt rétt á að fá að vita hvaða upplýsingar við höfum um þig, fá þær leiðréttar eða þeim eytt, takmarka eða andmæla vinnslu og fá þær afhentar. Þú getur alltaf dregið samþykki til baka. Sendu okkur línu á fsi@fornleif.is eða hringdu í síma 551 1033.

Þú getur einnig kvartað til Persónuverndar.

Síðast uppfært 20. október 2026.