Skilmálar vefverslunar
Þessir skilmálar gilda um kaup á vörum í vefverslun Fornleifastofnunar Íslands, kt. 680695-2969, Bræðraborgarstíg 9, 101 Reykjavík.
Almennt
Fornleifastofnun Íslands áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga, og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á vörutegundir fyrirvaralaust. Áskilinn er réttur til að staðfesta pantanir símleiðis. Öll verð eru birt með fyrirvara um villur og myndbrengl.
Afhending vöru og greiðsla
Seldar vörur verða að jafnaði tilbúnar til afhendingar á skrifstofu FSÍ á Bræðraborgarstíg 9, eða sendar í pósti innan 5 virkra daga með þeim fyrirvara að þær séu til á lager. Séu pantaðar vörur uppseldar mun skrifstofa FSÍ hafa samband við fyrsta tækifæri með tölvupósti eða í síma. Sendingar sem kaupandi sækir sjálfur eru afhentar honum eða umboðsmanni hans á skrifstofu Fornleifastofnunar Íslands að Bræðraborgarstíg 9, 101 Reykjavík, milli kl. 9 og 16 virka daga.
Allar pantanir í póstsendingu eru sendar með Póstinum og gilda afhendingar-, ábyrgðar- og flutningsskilmálar Póstsins um afhendingu vörunnar. Sendingarkostnaður greiðist við móttöku samkvæmt verðskrá Póstsins. Fornleifastofnun Íslands ber enga ábyrgð á tjóni sem kann að verða á vöru í flutningi. Verði vara fyrir tjóni frá því að hún er send frá Fornleifastofnun til viðkomandi er tjónið á ábyrgð kaupanda.
Greiðsla fer fram á sama tíma og kaupandi skráir kaup sín. Greiðsla með greiðslukorti fer fram í gegnum örugga greiðslusíðu Teya sem kaupanda er beint sjálfkrafa á. Þegar kaupandi staðfestir greiðsluna er upphæðin skuldfærð af kortinu.
Greiðslur með greiðslukortum eru alfarið meðhöndlaðar af Teya og engar kortaupplýsingar eru vistaðar á vefþjónum Fornleifastofnunar.
Skilmálar þessir eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur. Lögheimili og varnarþing Fornleifastofnunar Íslands eru í Reykjavík.
Öll verð eru með virðisaukaskatti og reikningar gefnir út með VSK.
Skilafrestur og endurgreiðsluréttur
Varðandi vöruskil gilda almenn neytendalög um vöruskil í netverslunum. Kaupandi hefur 14 daga til að hætta við kaupin að því tilskildu að hann hafi ekki notað vöruna og henni sé skilað í góðu lagi í óuppteknum upprunalegum umbúðum. Ef vara er innsigluð má ekki rjúfa innsiglið. Fresturinn byrjar að líða þegar varan er afhent skráðum viðtakanda. Kvittun fyrir vörukaupunum þarf að fylgja með. Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu ef ofangreind skilyrði eru uppfyllt og eftir að varan er móttekin. Flutnings- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd. Vinsamlegast hafið samband við Fornleifastofnun á netfangið fsi@fornleif.is með spurningar.
Trúnaður og notkun persónuupplýsinga
Fornleifastofnun Íslands heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.