
Um okkur
Fornleifastofnun Íslands var stofnuð sumarið 1995. Frá upphafi hefur markmiðið verið að vinna vandaðar rannsóknir í íslenskri fornleifafræði og brúa bilið milli rannsókna og ráðgjafar. Skráningaraðferð okkar tengir saman örnefni, þjóðfræði, ritheimildir og fornleifar í einum gagnagrunni, Ísleif.

Framkvæmdastjóri, yfirmaður skráningarsviðs
elin@fornleif.isRannsóknasvið: Aðferðir við fornleifaskráningu
Elín Ósk Hreiðarsdóttir, framkvæmdastjóri, yfirmaður skráningarsviðs, fornleifafræðingur (MA).
Elín hefur starfað hjá Fornleifastofnun Íslands frá 1998 og sinnt starfi framkvæmdastjóra frá 2019. Hún sérhæfir sig í fornleifaskráningu og rannsóknum á menningarlandslagi. Elín hefur stýrt fjölmörgum rannsóknar-, skráningar- og húsakönnunarverkefnum um allt land á undanförnum áratugum. Hún hefur einnig áhuga á efnismenningu og hefur m.a. rannsakað perlur frá víkingaöld og síðari tímum. Elín hefur birt fjölda greina og skýrslna og tekið virkan þátt í faglegu starfi, m.a. sem formaður Félags íslenskra fornleifafræðinga og stjórnarmaður í ICOMOS.

Stjórnarmaður
Rannsóknasvið: Félags- og hagsaga Íslands á miðöldum, kirkjusaga, búsetumynstur
Orri Vésteinsson lauk doktorsprófi í sagnfræði og MA-prófi í fornleifafræði frá University College London. Orri hefur tekið þátt í rannsóknum í Bretlandi, Japan og á Íslandi og stýrt fjölda uppgraftar-, skráningar- og útgáfuverkefna á Íslandi frá 1989. Orri er einn af stofnendum FSÍ og starfaði við stofnunina 1995-2010. Hann varð prófessor í fornleifafræði við Háskóla Íslands árið 2010.
Meðal nýlegra rita hans eru Polity and Neighbourhood in Early Medieval Europe (ritstj. ásamt S. Brooks og J. Escalona, 2020) og Minjaþing (2020). Hann hefur ritstýrt tímaritinu Archaeologia Islandica frá 2016.

Fornleifafræðingur
gudrun@fornleif.isRannsóknasvið: Gripafræði
Guðrún Alda Gísladóttir lauk MA-prófi í fornleifafræði frá Háskóla Íslands 2004 og stundar nú doktorsnám við Durham-háskóla í Bretlandi. Guðrún hefur unnið við fornleifaskráningu og uppgrefti hjá Fornleifastofnun síðan 2001.

Fornleifafræðingur
gylfi@fornleif.isRannsóknasvið: Byggingararfur, landslagsfornleifafræði, fornleifafræði síðari alda
Gylfi Helgason er með MA-gráðu í landslagsfornleifafræði frá University of Leicester. Hann hefur aðallega unnið við fornleifaskráningu á Íslandi og við skráningu standandi bygginga í Bretlandi.

Fornleifafræðingur, sérfræðingur í mannabeinum
hildur@fornleif.isRannsóknasvið: Fornmeinafræði
Hildur Gestsdóttir lauk MS-prófi í beinafræði og fornmeinafræði frá háskólanum í Bradford 1998 og doktorsprófi frá Háskóla Íslands 2016. Hildur hefur mikla reynslu af mannabeinarannsóknum, sem hún hefur unnið fyrir Fornleifastofnun frá 1997, fyrir Þjóðminjasafnið, Bath Archaeological Trust á Englandi, Exeter Archaeology, Cornwall Archaeological Unit og Somerset County Council.
Fornleifafræðingur
kristborg@fornleif.isRannsóknasvið: Búsetumynstur, fornleifafræði ferðalaga
Kristborg Þórsdóttir er með MA-gráðu í fornleifafræði frá Háskóla Íslands. Kristborg hefur unnið hjá Fornleifastofnun síðan 2008, við fornleifaskráningu og uppgrefti.
Fornleifafræðingur
Rannsóknasvið: Forvarsla, þingstaðir
Kristjana Vilhjálmsdóttir er með MA-gráðu í forvörslu frá Cardiff University. Hún hefur kennt forvörslu við Háskóla Íslands frá 2019.
Fornleifafræðingur
ragnheidur@fornleif.isRannsóknasvið: Miðaldafornleifafræði, félagsleg fornleifafræði
Ragnheiður Gló Gylfadóttir er með MA-gráðu í fornleifafræði frá Háskóla Íslands. Ragnheiður hefur unnið hjá Fornleifastofnun Íslands frá árinu 2008, við fornleifaskráningu og önnur tilfallandi verkefni.

Jarðfornleifafræðingur
Rannsóknasvið: Efnagreiningar, fornleifaskráning
Sólveig G. Beck er með doktorspróf í fornleifafræði frá Háskóla Íslands og MSc-gráðu í jarðfornleifafræði frá Háskólanum í Reading. Hún hefur starfað við uppgrefti og fornleifaskráningu frá árinu 2003.

Fornleifafræðingur
stefan@fornleif.isRannsóknasvið: Fornleifateikningar
Stefán Ólafsson er með MA-próf í fornleifafræði frá Háskóla Íslands. Stefán hefur unnið hjá Fornleifastofnun Íslands síðan 2003, við forngripateikningar, uppgrefti og fornleifaskráningu.

Forstöðumaður
Rannsóknasvið: Saga fornleifafræðinnar, landslagsfornleifafræði
Adolf Friðriksson lauk doktorsprófi frá Sorbonne-háskóla í París. Hann hefur tekið þátt í uppgröftum í Bretlandi, Frakklandi, Ítalíu, Noregi, Karíbahafi og á Íslandi og hefur stýrt fjölda uppgraftar-, skráningar- og útgáfuverkefna frá 1989. Hann sat í stjórn Norrænu heimsminjaskrifstofunnar í Ósló 1999–2001.
Adolf er höfundur bókarinnar Sagas and Popular Archaeology in Iceland (Avebury 1994) og annar höfunda Kumls og haugfjár (Mál og menning 2000, 2016).

Stjórnarmaður
Rannsóknasvið: Aðferðir í fornvistfræði, kornrækt á Íslandi á miðöldum
Garðar Guðmundsson lauk BSc-prófi í fornleifafræði frá Institute of Archaeology, University College London. Hann hefur tekið þátt í ýmsum rannsóknarverkefnum í Bretlandi, á Grænlandi og á Íslandi.

Stjórnarmaður
Rannsóknasvið: Miðaldafornleifafræði
Mjöll Snæsdóttir lauk fil.kand.-prófi í fornleifafræði og þjóðfræði frá Uppsalaháskóla. Hún hefur tekið þátt í rannsóknum í Noregi, Svíþjóð og á Íslandi. Hún stýrði uppgreftinum á Stóruborg 1978–1990, umfangsmesta björgunaruppgrefti sem gerður hefur verið á Íslandi. Mjöll ritstýrði Árbók Hins íslenzka fornleifafélags 1993–2006.

Stjórnarmaður
Rannsóknasvið: Kenningar og aðferðir í fornleifafræði, fornleifafræði nútímans
Gavin Lucas lauk doktorsprófi í fornleifafræði frá Cambridge-háskóla. Hann hefur tekið þátt í uppgröftum í Bretlandi, Ítalíu, Tyrklandi, Suður-Afríku og á Íslandi.
Meðal nýlegra rita hans eru Writing the Past (Routledge, 2019), Understanding the Archaeological Record (Routledge, 2012) og kaflinn „Later Historical Archaeologies of the North Atlantic“ í The Oxford Handbook of Historical Archaeology (2017).