2. október 2026

Gavin Lucas fjallar um Skálholtsrannsóknirnar í Stokkhólmi

Miðvikudaginn 7. október heldur Gavin Lucas fyrirlestur um Skálholtsrannsóknirnar á Historiska museet í Stokkhólmi.

Bindin þrjú um Skálholtsrannsóknirnar

Skálholtsrannsóknir fara víða og næstkomandi miðvikudag, 7. október, heldur Gavin Lucas fyrirlestur um rannsóknirnar á Historiska museet í Stokkhólmi.

Fyrirlesturinn ber yfirskriftina Friends in High Places: Excavations at a Bishop’s Residence in Iceland. Þar mun Gavin fjalla um hvað fornleifar geta sagt okkur um vald, daglegt líf og alþjóðleg tengsl á Íslandi á 17. og 18. öld.

Hægt verður að fylgjast með fyrirlestrinum bæði á safninu í Stokkhólmi og í beinu streymi. Nánar um fyrirlesturinn og miðapantanir á vef Historiska museet.

Fyrir þau sem hafa áhuga á fornleifum, sögu Skálholts eða Íslandssögunni minnum við jafnframt á að þriðja og síðasta bindið í ritröðinni um Skálholtsrannsóknirnar er nýkomið út. Það ber nafnið Skálholt: Excavations of a Bishop’s Residence and School c. 1650–1790. Volume 3: The Ecofacts and Synthesis, eftir Gavin Lucas og Mjöll Snæsdóttur.

Bókin er nú á sérstöku útgáfutilboði í vefverslun Fornleifastofnunar Íslands.