28. ágúst 2026

Minjar í hættu í Bæjargerði í Jökulsárhlíð

Jökulsá hefur brotið að minnsta kosti 20 metra af bakkanum þar sem minjar eru í Bæjargerði. Í ágúst voru minjarnar mældar upp og rofabarðið kannað.

Loftmynd af Bæjargerði með túngörðum, minjaþyrpingu og mörkum árbakkans árið 1975

Síðasti staðurinn sem var heimsóttur á Austurlandi nú í sumarlok var Bæjargerði í landi Sleðbrjóts í Jökulsárhlíð. Bærinn var í hvammi sem ýmist var nefndur Neðstidalur eða Bæjargerðisdalur, á bakka Jökulsár. Um hann þegja heimildir að mestu þunnu hljóði og eru minjarnar því besti vitnisburðurinn um búskap á þessum stað. Töluverðar minjar eru í hvamminum, umfangsmiklir túngarðar, óljós minjaþyrping á árbakkanum og stakar minjar á nokkrum stöðum.

Jökulsá hefur verið aðgangshörð á þessum slóðum og ljóst er að hún hefur þegar brotið mikið land í Bæjargerðisdal. Þegar núverandi árbakki er borinn saman við loftmyndir sem teknar voru af staðnum fyrir um 50 árum má sjá að á tímabilinu hefur áin brotið a.m.k. 20 m framan af bakkanum, einmitt þar sem minjarnar eru. Á eldri loftmyndunum sjást jafnframt mun umfangsmeiri leifar af líklegu landbroti úti í ánni (sjá merkingar á loftmynd) sem benda til að undirlendi hafi verið talsvert meira á fyrri öldum.

Við rannsóknirnar nú í ágúst voru minjar á svæðinu mældar upp og borkjarnasýni tekin. Að auki var þess freistað að kanna rofabarðið við ána. Til að slíkt sé gerlegt þurfa skilyrði að vera ákjósanleg og lítið vatn í ánni, svo sniðin séu sýnileg og hægt sé að vinna neðan við rofabarðið, en einmitt þannig aðstæður voru fyrir hendi þegar staðurinn var heimsóttur nú á dögunum. Þá var um sjö m kafli af sniðinu hreinsaður að fullu og nákvæmar sniðteikningar gerðar af jarðvegs-, gjósku- og mannvistarlögum. Auk þess var stærri hluti rofabarðsins kannaður eftir því sem færi gafst og tvö svæði til viðbótar hreinsuð upp og mynduð.

Í sniðinu sáust margvíslegar mannvistarleifar, m.a. ummerki um veggi og torfhrun og önnur mannvistarlög. Annars staðar sáust einnig þykk kolalög og linsur úr öskuhaugi og á einum stað í sniðinu var niðurgrafin hola greinileg, full af grjóti og kolum. Öll mannvistarlög sem skoðuð voru í sniðinu voru frá fyrstu öldum byggðar, en gjóskulag frá Heklu sem féll árið 1158 var áberandi í sniðinu og innsiglaði allar þær minjar sem þar voru kannaðar.

Ljóst er að talsvert hefur gengið á minjarnar í Bæjargerði og brýnt er að rannsaka þær frekar á næstu árum áður en þær skemmast frekar. Leiðangursfólk vonast til að unnt reynist að afla frekari rannsóknarstyrkja svo hægt verði að halda rannsóknum þar áfram á næstu árum.