17. september 2026

Þriðja og síðasta bindið um Skálholt er komið út

Með útgáfu þriðja bindisins lýkur meira en tuttugu ára rannsóknar- og útgáfuferli um Skálholt.

Kápa þriðja bindis Skálholtsritraðarinnar

Út er komið þriðja og síðasta bindið í ritverkinu Skálholt: Excavations of a Bishop’s Residence and School c.1650–1790, Volume 3: The Ecofacts and Synthesis.

Með útgáfu þess lýkur meira en tuttugu ára rannsóknar- og útgáfuferli sem hófst þegar Fornleifastofnun Íslands hóf fornleifarannsóknir í Skálholti árið 2002. Uppgröfturinn stóð yfir í sex sumur og varð einn sá viðamesti sem fram hefur farið hér á landi.

Fyrsta bindið, The Site, kom út árið 2022 og fjallar meðal annars um rúmlega 30 byggingar sem rannsakaðar voru á staðnum. Annað bindið, The Artefacts, fylgdi árið 2024 og er helgað þeim þúsundum gripa sem komu í ljós við uppgröftinn.

Í þriðja og síðasta bindinu er sjónarhornið víkkað enn frekar. Þar er fjallað ítarlega um plöntuleifar, skordýr og dýra- og fiskbein úr uppgreftinum sem varpa ljósi á fæðu, búskap, umhverfi og daglegt líf í Skálholti. Jafnframt eru niðurstöður rannsóknarinnar í heild dregnar saman og Skálholt sett í víðara samhengi, meðal annars með tilliti til samfélags, efnahags og umhverfis.

Útgáfan er veigamikil og á sér vart hliðstæðu í sögu íslenskrar fornleifafræði. Saman mynda bindin þrjú umfangsmikið heimildasafn um líf, samfélag og efnismenningu í Skálholti og skapa um leið mikilvægan grunn fyrir frekari rannsóknir á íslensku samfélagi á síðari öldum.

Þriðja bindi Skálholtsrannsóknarinnar er nú til sölu í vefverslun Fornleifastofnunar á sérstöku útgáfutilboði.